Þá eru Ásgeir og Katrín komin til Íslands! Fóru í gær og gekk bara ágætlega að mestu. Pabbinn var með 3ja klst. skemmtipakka í töskunni fyrir flugið sem hann hefði geta sleppt. Við flugtak kom nefnilega í ljós að dóttir mín er flughrædd. Henni leist ekkert á þessi ósköp, kúrði sig bara hjá pabba sínum og sofnaði að lokum. Vaknaði svo eftir klukkutíma og sat bara stillt og prúð í sætinu sínu og spjallaði! Vel uppalin finnst ykkur ekki!
Þannig að nú hefst “húsmæðraorlofið” mitt. Get ræktað letingjann í mér nætu tvær vikurnar á milli vakta. Já, þið munið finna mig í sófanum. Er reyndar með stórhreingerningu á listanum mínum…. Ótrúlega hljótt hérna núna, hálf leiðinlegt verð ég að segja.
Kem heim sunnudaginn 1. júlí þegar sumarfríið mitt byrjar!!! Ég hlakka svo til
Ætla að fara í sund og fá mér almennilega pítsu!
Höfum annars haft það með ágætum hér að undanförnu. Veðrið búið að vera frábært og búið er að fjárfesta í sundlaug fyrir Katrínu. Hefur notið sín vel í henni í hitanum.
Jæja kæru vinir, sjáumst í júlí!

. Við sem vorum að vonast til að hann myndi endast fram á vor þegar við gætum selt hann. Þurfum nefnilega að eiga bílinn í 1 ár vegna þess að við fluttum hann frá Íslandi, megum hvorki selja hann né henda honum! Það góða er að við fengum tíma á verkstæði samdægurs og það telst lúxus hér í Svíþjóðinni! Ásgeir náði að keyra bílinn með herkjum til læknis og sótti bílaleigubíl í leiðinni….. Þoli ekki að standa í svona veseni og vil helst ekki hugsa til þess hvað þetta kemur til með að kosta!