Snjór!

Amm, fékk smá sjokk þegar ég leit út um gluggann í morgun!  Það er byrjað að snjóa aftur!  Alveg ótrúlegt, ég bara spyr erum við flutt á Norðurpólinn???  Svíarnir þykjast vera voðalega hissa á veðrinu, er farin að taka þá álíka trúanlega og Akureyringa….Hér er veðurspáin í dag

veðrið

Published in: on March 31, 2006 at 8:52 am Comments (3)

Sjónvarpssjúklingurinn

mars 081.jpg

Hér er daman búin að koma sér vel fyrir fyrir framan sjónvarpið.  Engin þörf á Lazy boy þegar maður er svona lítill:)

Published in: on March 30, 2006 at 7:16 pm Comments (2)

Pósturinn

Sænski pósturinn er pínu kúl hann keyrir nefnilega um á bíl.  Hann setur eiginlega smá torfbæjarstemmningu yfir þann íslenska.  Annars finnst okkur alveg ótrúlegt hvað Svíarnir nota póstinn mikið.  Ef maður er t.d. að sækja um eitthvað þá þarf maður bíða eftir að fá bréf í póstinum og oftar en ekki þarf maður svo að senda það til baka!!!  Náði að lauma einni mynd af póstinum í gegnum eldhúsgluggann um daginn.  Hér er hann…

pósturinn páll

Published in: on March 29, 2006 at 6:25 pm Leave a Comment

Sumartími

Það var skipt yfir á sumartíma á sunnudaginn.  Frekar fyndið að ganga svona um húsið og breyta öllum klukkum!  Annars græddum við fjölskyldan þó nokkuð á þessu.  Annars vegar styttist vaktin hans Ásgeirs um klukkutíma og hins vegar hefur litla daman ekki alveg áttað sig á breytingunni.  Hún fer að sofa á sumartíma en vaknar á vetrartíma!   Það þýðir 13 klukkustunda nætursvefn og ég hef ekki verið jafn úthvíld lengi.  Vona að hún fatti þetta ekki alveg strax

Annars hefur gripið um sig nýtt æði á heimilinu.  Æðið heitir Söngvaborg!  Um leið og Katrín sér sjónvarpið er beðið um krakkana! og svo situr hún límd í svona 15-20 mín.  Hjá foreldrunum vakna hins vegar blendnar tilfinningar.  Við fögnum því að vera komin með svona "barnpíu" EN gjaldið er alveg ótrúlega leiðinlegt sjónvarpsefni.  Hér er svo skvísan með smjörborið hár!

mars 055.jpg

Published in: on March 28, 2006 at 8:05 am Comments (5)

Júhúúú!!!

Fórum til Uppsala í gær og keyptum hús!  Svo einfalt var það.  Fyrir valinu varð hús í byggingu í Herrhagen.  Hér er mynd af því

mars 062.jpg

sem sagt bara grunnur í dag.  En mun líta svona út…

mynd

Okkur leist rosalega vel á þessi hús og eins og sannir Íslendingar löbbuðum við einn rúnt og sögðum svo:  "ég ætla að fá þetta hús"……  Það besta er að húsið sem við völdum snýr baki í opið svæði og skóg.  Síðan er stutt í alla þjónustu og System Bolaget er í göngufæri, pínu kúl!  Amk ætti þá að vera stuð yfir grillinu :-)   Við eigum að vísu eftir að skrifa undir kaupsamning en það er held ég bara formsatriði…..

Erum því kampakát og var kaupunum (eða skuldunum) fagnað með pönnukökum, eggjum og beikoni hjá Gunnari og Ingu Sif í gær :-)

Published in: on March 26, 2006 at 4:12 pm Comments (17)

Fyrsta orðið!

mars 051.jpg

Katrín sagði fyrsta orðið sitt á sænsku í gær!  Hún stóð á miðju eldhúsgólfinu ákaflega glaðhlakkaleg og sagði hátt og skírt úmpan, úmpan og sló á bossann!  Hún ætlaði náttúrulega að segja rumpan sem er bossi.  Fallegt fyrsta orð, finnst ykkur ekki???  Ég segi náttúrulega bara eins og svo margir foreldrar, hún lærði þetta í leikskólanum!  Það er reyndar alveg satt….

Annars er ferðinni heitið til Uppsala um helgina, önnur fasteignaferð!  Vonum að þetta endi betur en síðast.

Published in: on March 24, 2006 at 10:11 am Comments (7)

Vor í lofti??

Hér er smá svona fyrir/eftir mynd úr garðinum.  Smá munur??  Snjórinn er reyndar ekki farinn, en ég veit um eina fjölskyldu sem verður frekar fegin þeim degi!

vetur

vor

Published in: on March 19, 2006 at 8:00 pm Comments (6)

Júróvisjón!

Við skötuhjú sitjum hér og horfum á úrslitakvöld undankeppni Svía eða hvað þetta nú kallast.  Þetta er svaka dæmi hjá þeim, dómnefnd, símakosning og Lena Phillipsson sem er svona glyðra Svíþjóðar!  Og ótrúlegt en satt Carola vann þetta, hún er svona Selma þeirra  Svía.  Ég skil nú ekki mikið í sænskunni en ég held að þau hafi sagt að hún ætti ekki sjens í Silvíu Nótt, skiluru!

En hér hún, lagið er reyndar alveg ágætt.  Svona júróvisjónlag :)

Published in: on March 18, 2006 at 8:56 pm Comments (5)

Göngutúr

mynd

Hér mynd af okkur mæðgum í göngutúr.  Þið afsakið grettuna EN það var sól í gær!

 

Published in: on at 1:54 pm Leave a Comment

og….

við bökkuðum út úr uppboðinu.  Þetta var eiginlega orðið eins og að eltast við skottið á sér og við vorum ekki tilbúin að fara hærra fyrir þetta hús!  Þannig fór um sjóferð þá.  Ásgeir er hins vegar hæst ánægður með þetta því að þá fær hann halda áfram þessum fasteignahugleiðingum!!!  Hann hefur svoooo gaman af því!  Nú leggjumst við undir feld um helgina og ákveðum næstu skref!  Hins vegar má svo sem bæta því við að þetta er ekki alveg búið því að hinir eiga eftir að skrifa undir og hér í Svíþjóð eru svona tilboð ekki bindandi þannig að bæði seljandi og kaupandi geta bakkað út.  Frekar skrítið kerfi.  En við erum alveg sátt við þetta, ætlum bara að finna okkur ennþá betra hús!

Jæja, farin að kíkja á fasteignir!

 

Published in: on March 17, 2006 at 12:02 pm Comments (2)