Jæja ætli það sé ekki kominn tími á smá fréttaskot frá Svíþjóð, svona áður en þið hættið að nenna að kíkja á þessa síðu. Það er ekki laust við að það sé ennþá smá páskaleti í húsinu amk í bloggi….. Við höfðum það annars súpergott yfir páskana! Fengum góða gesti, borðuðum góðan mat, slátruðum risastóru páskaeggi og ég held barasta að ég sé ennþá södd! Katrín var sérstaklega ánægð með að fá gesti og elti þá á röndum fyrstu dagana. Hún var ekkert feimin þrátt fyrir að hafa ekki séð ömmu, afa og Sigga í tvo mánuði og Önnu hafði hún ekki séð í einn mánuð.
Annars er komið sumar hér í Svíþjóð, loksins! Katrín er farin að hlaupa um húfulaus og á tásunum, finnst það voðalega gaman! Svo erum við búin að fá okkur stól fyrir hana á hjólið, það finnst henni alveg frábært. Mamma hennar er hins vegar stressaðari yfir þessu og fer ekkert í mjög langar hjólaferðir.
Var svo að hlaða inn myndum á barnalandssíðuna, endilega kíkið!
Kveðja, Elín og co
