Hjúkkur til leigu!

Má til með að tjá mig aðeins um þetta hjúkkumál heima!  Þetta er náttúrulega algjör skandall og vona ég að þetta verði til þess að hjúkrunarfræðingar á Landsanum segi nú loksins nei takk!!!  Annars er nokkuð ljóst að maður sækir um vinnu í framtíðinni í gegnum starfsmannaleigu, kannski bara sænka???

Sá þessa mynd á hjukrun.is og fannst hún soldið fyndin!  Segi svo bara go girls!!! 

 

Published in: on May 26, 2006 at 8:49 pm Comments (3)

Búað á Silvíu!

Ég verð nú bara að viðurkenna að Íslendingurinn í mér var sármóðgaður í gær!  Ég meina mér fannst nú alveg óþarfi að púa á Silvíu þó að hún sé algjör api.  Aftonbladet var líka móðgað og spurði hvort Evrópubúar væru húmorslausir???  Fannst hún reyndar aðeins ofleika í atriðinu EN það var flott, fullt af glimmer og glansi!  Við kusum Silvíu tvisvar en það virðist ekki hafa skilað árangri!  Og men sum lögin sem komust áfram voru alveg ótrúlega leiðnleg og léleg!  Held barasta að við ættum að gefa skít í þessa keppni enda greinilega eitt stórt samsæri gegn okkur þarna!

Svíþjóð og Finnland komust hins vegar áfram þannig að ég held að ég haldi með þeim á laugardaginn.  

 

Published in: on May 19, 2006 at 10:12 am Comments (3)

XXN-614!

Já það tókst!  Bíllinn okkar er orðinn sænskur ríkisborgari.  Þetta gekk nú ekki þrautalaust fyrir sig enda sænska skriffinskan í essinu sínu.  Held að ég sé búin að senda svona 5 bréf og hringja 50 símtöl í tengslum við þetta mál, auk þess sem bíllinn er búinn að vera hérna í mánuð!  En þetta hafðist, nú er bara að skella sér í bíltúr og kíkja á hvað Svíþjóð hefur upp á að bjóða!

Fengum annars góða gesti um helgina!  Sunna og Valur komu og mikið var nú gott að fá þau í heimsókn.  Katrín var alveg ótrúlega góð við Val, það kom eiginlega soldið á óvart.  Hann tók af henni dudduna, reif í hárið hennar og kleip en hún brosti bara til hans og labbaði svo í burtu.  Það var bara eins og hún skynjaði að hann væri minni en hún!  Hún meira að segja bauðst til að halda á honum!  Í dag sagði hún svo Sunna máta – strákur lúlla!  Það gefur svona nokkuð góða hugmynd um hvað við Sunna gerðum þessa daga.  Börnunum fannst það ekki jafn gaman og mæli ég ekkert sérstaklega með H&M ferð með tveimur börnum og emmaljunga kerrum….næst verða þau hjá pöbbum sínum!

Annars hefur aðeins kólnað hér síðustu daga, það finnst mér ekki gaman!  Vil fá fullt af sól áður en við förum heim, svo má rigna í júlí og ágúst mín vegna enda hefur ásgeir ekkert gott af of mikilli sól!

Bestu kveðjur úr rigningunni! 

Published in: on May 17, 2006 at 6:45 pm Comments (1)

Sól og blíða

Sól og blíða í Västerås í dag!  Við Ásgeir gátum því unnið í brúnkunni sem við ætlum að flytja með okkur heim.  Katrín er hins vegar ekki jafn hrifin af sólinni og við.  Hún bara grettir sig og reynir að flýja inn í skóg.  Hitinn hefur líka skapað nýtt vandamál í sambandi við að sofa úti.  Fyrst var eiginlega of kalt og nú er of heitt!  Náði samt að búa til smá skugga fyrir vagninn með svalahurðinni í dag og þar svaf hún á samfellunni í kerrupoka.  Kerrupokinn er greinilega ómissandi og hefur hún ákveðið að sofa bara á daginn ef hún er í honum!  Hún kann greinilega best við sig í svölu loftslagi…

Byrjaði á sænskunámskeiðinu í gær.  Það var próf í fyrsta tímanum og mér leið eins og ég væri að taka dönskupróf í 8. bekk.  Byrjaði á að fylla inn í eyður, síðan raða orðum í setningar, nefna andstæður, lesa texta og merkja í rétt/rangt og svo að lokum að skrifa bréf!  Það verður nokkuð forvitnilegt að vita hvernig þetta próf kemur út þar sem ég hef lítið lesið á sænsku og ekkert skrifað!  Verður ábyggilega soldið bjagað…  Fékk svo kennslubók og málfræðibók þannig að nú er bara að bretta upp ermarnar og byrja að læra!

Svo átti ég víst eftir að segja ykkur að við komum heim í sumar.  Ég átti dramatískt mómet við tölvuna um daginn þar sem ég reyndi að ná í 2000 kr tilboð hjá Iceland Express!  Kerfið hjá þeim var alltaf að hrynja og ég ætlaði aldrei að ná alla leið.  Síðan sá ég verið hækka og hækka….  EN þetta tókst að lokum og ég fékk 2000 kr miða fyrir okkur!  Við Ásgeir komum heim 21. júní, hann fer svo aftur til Svíþjóðar 7. júlí en við Katrín verðum heima til 4. sept!!!

Published in: on May 5, 2006 at 6:57 pm Comments (2)