Sumarfrí!

Jæja þá er kallinn kominn í sumarfrí! Við fórum til Uppsala í gær til að kíkja á leikskólann hennar Katrínar. Hann er voðalega lítill og sætur, bara 13 börn og 3 fóstrur…eða á maður kannski að segja leikskólakennarar! Við ætluðum reyndar aldrei að finna hann enda staðsettur í venjulegu íbúðarhúsi. Katrín fór svo bara að leika sér um leið og við komum inn þannig að vonandi á þetta eftir að ganga vel í haust!

Sáum svo að búið er að reisa húsið okkar og hverifð farið að taka á sig smá mynd, set inn mynd fyrir áhugasama…

Mai 032.jpg
Mai 033.jpg

Published in: on June 9, 2006 at 9:23 am Comments (3)