Húseigendur!

Þá erum við Ásgeir loksins komin í fullorðinna manna tölu.  Skrifuðum undir samninginn á föstudaginn og fengum lyklana afhenta.  Svo gaman að vera að flytja í sitt eigið hús!   Þetta lítur allt rosalega vel út, bjart og vel skipulagt sem Svía er siður…  Fórum tvær ferðir í dag með fullan bíl af dóti í dag og stefnum svo á að flytja rest um næstu helgi.  Katrín virtist bara kunna vel við sig, fannst stofan mjög skemmtileg enda nóg pláss til að hlaupa og hoppa.  Hún var hins vegar ekki alveg tilbúin að viðurkenna herbergið sitt því þar var ekkert dót!  Hverfið lofar líka góðu þó að þetta sé eins og hálfgert byggingarsvæði ennþá!  Fullt af krökkum í hverju húsi þannig að Katrín ætti að hafa nóg að gera.  Síðan er verið að byggja grunnskóla í næstu götu svo að það verður ekki langt að fara.  Tók eitthvað af myndum sem ég set inn á barnalandssíðuna hennar Katrínar á næstu dögum.

Published in: on September 16, 2006 at 6:49 pm Comments (10)

Komin heim!

Jæja þá erum við mæðgur komnar aftur heim til Svíþjóðar! Búnar að taka upp úr töskum og byrjaðar að pakka aftur….gaman! Katrín er reyndar ekki alltaf sammála móður sinni um hvað eigi að fara ofan í kassa og hvað ekki, en þetta gengur allt ágætlega. Planið er að flytja eftir rúmar tvær vikur þannig að það er best að byrja á þessu.  Kíktum á húsið í gær og það er allt að verða tilbúið.  Hlökkum mikið til að komast þangað!

Ferðalagið gekk mjög vel, Katrín var reyndar ekkert á því að leggja sig í fluginu en gafst upp í lendingunni!  Soldið seint verð ég að segja….  Hún var svo mjög kát að sjá pabba sinn, var ekkert feimin en hefur passað voðalega vel upp á hann síðan við komum.  Það er búið að vera mjög gaman hjá henni síðustu daga enda á hún allt í einu fullt nýju dóti og það er sko ekki leiðinlegt!  Bara vá en fínt!  Katrín hefur reyndar gleymt þeirri litlu sænsku sem hún var búin að læra, býður bara góðan daginn núna og segir bless við fólk, en þetta kemur allt.

Jæja ætla að reyna að vera dugleg að blogga núna, þið hafið kannski heyrt þetta áður…en við sjáum til!

Published in: on September 6, 2006 at 7:49 pm Comments (6)