Jæja þá erum við LOKSINS komin með netið aftur!!! Alveg ótrúlegt hvað allt tekur langan tíma hér í Svíþjóðinni…. Held að ég muni seint venjast því. Við Ásgeir höfum reyndar velt því fyrir okkur hvort Svíarnir séu svona slow eða við svona sein að öllu. Ég meina sko er eðlilegt að biðja um flutning á neti og síma mánuði áður en maður flytur inn??? Þannig að ég hef verið löglega afsökuð í sambandi við bloggleysi og myndaleysi. Þarf nú að fara að redda því.
Annars erum við búin að koma okkur ágætlega fyrir. Allir kassar tómir, húsgögn komin á sinn stað og það eina sem er eftir er að hengja upp myndir og gardínur! Uppsala lofar líka góðu og það verður að viðurkennast að þetta er mun skemmtilegri borg en Västerås! Hverfið okkar er reyndar hálfgert byggingarsvæði ennþá. Vöknum við sprengingar og læti á morgnana. Það er svo sem allt í lagi EN þeir byrja klukkan SJÖ!!! stundum fyrr. Come on, held að þetta fók sé á öðru tímabelti en við. En sem betur fer stimpla þeir sig út á réttum tíma og eru í fríi um helgar!!!
Katrín er svo byrjuð á leikskólanum og kann bara ágætlega við sig. Hún er farin að vera ein í rúma tvo tíma og það hefur gengið vel. Svo kemur hún heim og syngur kalli litli kónguló og imse vimse spindel saman það er frekar fyndið. Kalli litli kónguló klättrar upp för trån, svo kom rigning spular spindel bort…… Þessir krakkar eru svo miklir svampar. Við vourm að tala um að hún yrði ein á leikskólanum og þá sagði hún bara mamma kommer! Litli Svíinn minn…
Ég var víst búin að lofa myndum af húsinu, reyni að redda því á næstu dögum!
Bestu kveðjur frá familíunni í Uppsala!