Piparkökubakstur

Bökuðum piparkökur í gær.  Þetta byrjaði vel en Katrín var ekki alveg með þolinmæðina á hreinu.  Soldið erfitt að skilja það að mamma þarf að fletja út deigið, svo má koma með formin og síðan bíða á meðan mamma setur kökurnar á plötuna.  Hún gerði því litlar kúlur eða klessur og kastaði á bökunarplötuna, já og reyndar um allt eldhús!  Sem sagt fallegar piparkökur í ár :)

november-010.jpg

november-012.jpg

Published in: on November 25, 2006 at 3:15 pm Comments (2)

Húsmyndir!

Jæja haldiði að húsmóðirin hafi ekki bara drifið sig í að setja nokkrar myndir af nýja húsinu og flutningum á netið.  Fyrir áhugasama þá má sjá myndirnar á síðunni hennar Katrínar, asgeirsdottir.barnaland.is!  Og ef þið viljið sjá meira þá verðið þið bara að koma í heimsókn…

Published in: on November 18, 2006 at 10:28 pm Comments (3)

Lítill heimur

Ásgeir lenti í nokkuð fyndnu atviki um daginn. Sölumenn frá símafyrirtæki hafa komið sér fyrir úti í Maxi (stórmarkaðnum) og þetta eru einhverjir aðgangshörðustu sölumenn sem ég hef komist í kynni við! Það dugir sko ekkert að horfa í hina áttina, segjast ekki eiga síma og trikkið að tala bara íslensku virkar ekki heldur! En allavega þá náði einn Ásgeiri um daginn og eftir nokkuð langa ræðu um samanburð á verði milli símafyrirtækja (held að það sé ein af uppáhaldsiðjum svía að jämföra!) bauðst hann til að uppfæra símann hans. Kauðinn spyr Ásgeir hvað hann heitir og Ásgeir segist heita Asgeir. Þá segir gaurinn á þessari fínu íslensku Ásgeir! Þetta var sem sagt Íslendingur. Við höfum núna áttað okkur á því að öfugt við Västerås er FULLT af Íslendingum í Uppsala. Um daginn þegar amma og Siggi komu í heimsókn fórum við niður í bæ og þar voru einhverjir á kanó í ánni. Amma segir sjáiði strákana! Þá snýr einhver maður sér að henni og segir…ég held að þetta séu stelpur…. Þannig að nú eigum við ekki lengur leynilegt tungumál sem enginn skilur :(

Við Ásgeir erum samt alltaf að komast betur og betur að því að við þokumst í þá áttana að verða sænsk, amk að sumu leyti. Á laugardögum fara Svíar til dæmis í búðir, Ikea, H&M, Maxi og fleiri fyllast af fólki. Síðan er eitthvað keypt fyrir heimilið og farið heim og dundað sér við það. Síðustu laugardaga höfum við einmitt gert þetta. Fyrst keyptum við snaga á baðið svo nýtt rúm handa Katrínu og í dag keyptum við skóskáp og skrifborð. Það sem er verst við þessar ferðið fyrir utan náttúrulega kostnaðinn… er hvað fólk hérna er hrikalega lengi að öllu, það gegnur allt á hraða músarinnar og ef það er eitthvað sem Svíar kunna ekki þá er það að flýta sér við kassann. Ásgeir var til dæmis alveg að missa sig í Ikea í dag. Honum finnst sko alls ekki gaman að fara þangað og hvað þá þegar búðin er troðfull og röðin á kassanum 100 m. Katrínu finnst hins vegar mjög gaman að fara í Ikea, þar er rennibraut og fullt af skemmtilegum herbergjum með bollastelli og pottum! Þetta lengir hins vegar ferðirnar til muna. Hún tekur sko ekki við þeim rökum að núna ætlum við að halda áfram. Oft hefur þetta endað með því að foreldrarnir segjast ætla að kaupa eitthvað handa henni! Í dag bauð Ásgeir henni hins vegar tyggjó og þá rauk hún af stað med det samma! Góðar uppeldisaðferðir finnst ykkur ekki…

Jæja ætli ég láti þetta ekki duga af bulli í bili, Katrín er núna komin í ballettbúninginn sinn og er að dansa við tatu! Ætla að fara að dansa með henni

kveðja, Elín

Published in: on at 2:36 pm Comments (2)

Sunnudagssteik!

Elduðum frábæra sunnudagssteik í gær! Íslenskt lambalæri, brúna sósu, brúnaðar kartöflur og grænar baunir og að sjálfsögðu smá salat fyrir Ásgeir :)   Mikið rosalega var þetta nú gott, svona matur klikkaði ekki.  Húsmóðirin þurfti reyndar tvær tilraunir við brúnuðu kartöflurnar, fyrsti skammtur brann….ég kenni að sjálfsögðu eldavélinni um það, maður er sko enn að læra á stillingarnar sjáiði til!  Svo er það nú líka þannig að við ungu húsmæðurnar brúnum ekki oft kartöflur.

Annars er allt gott að frétta frá Uppsala.  Kannski fyrir utan það að hér er kominn vetur!  Það snjóaði heilmikið fyrir rúmri viku en svo fór að rigna, soldið íslenskt finnst ykkur ekki.  Núna er bara frost og óge…. kalt!  Hélt til dæmis að hurðarnar á bílnum væru frosnar fastar í morgun, allar nema hjá farþegasætinu.  Var búin að hamast á hurðunum og var alveg að verða brjáluð þegar ég fattaði að centrallæsingin virkaði bara ekki við fyrstu tilraun…..hmmm soldið stúpid!

Katrín er núna á leikskólanum.  Hún var nú ekkert voðalega sátt í morgun þegar mamma hennar fór.  Ég skil það svo sem alveg.  Hún má nefnilega bara vera 15 tíma á viku sem þýðir 4 daga helgarfrí.  Það er kannski soldið mikið þegar maður er bara tveggja ára.  Hún er alltaf að læra ný orð í sænskunni.  En til öryggis segir hún allt bæði á sænsku og íslensku, svona svo að allir skilji hana!  Hún segir alltaf bless og hejdå og varsågod og gjörrusovel.  Annars talar hún mest íslensku á leikskólanum og þegar fóstrunar skilja hana ekki þá sýnir hún þeim bara hvað hún vill.  Dugleg að bjarga sér!

Hejdå så länge!

Elín

Published in: on November 13, 2006 at 10:29 am Comments (2)