Jólalyktin er komin í hús! Hangikjöt var soðið í gær og í dag var okkur illt í maganum…en svona eru jólin, er það ekki? Verst að geta ekki skolað þessu niður með malti og appelsíni, kók er bara ekki jafn gott með hangikjötinu. Katrínu fannst hangikjötið ekki gott! Sagði bara ekki gott og spítti því út úr sér! Annars eru þetta fyrstu jólin í langan tíma sem engin próf eru framundan! Söknuður? Kannski pínu, það var nú alltaf voðalega mikið fjör hjá okkur þarna í Eirbergi fyrir próf! Mikið hlegið og minna lært…og marga pítsur pantaðar á Eldsmiðjunni. Ohh það var svooo gaman. Besta grínið sem ég man eftir var þegar ein okkar fór með mynd af Guðrúnu Kristjáns í vasanum á jólahlaðborð, hehehe, smá einkahúmor! Þetta ættu þá líka að vera jólin sem 20 sortir af smákökum verða bakaðar og allt þrifið hátt og lágt EN jæja kannski seinna.
Höfum annars verið nokkuð framkvæmdaglöð síðustu vikuna. Íslendingarnir á Kiselvägen einangruðu geymslunar sínar um síðustu helgi. Þeir voru duglegir strákarnir og ráku inn rúmlega 1000 nagla! Ekki mikið mál, eða hvað? Í gær settum við svo seríur á svalirnar, það var reyndar aðeins minna mál og tók mun styttri tíma! Jólahreingerningin bíður enn og viðrist ekkert vera fara frá mér, það verður kannski verkefni næstu viku? Eða á ég bara að bíða eftir mömmu?
Prinsessan á heimilunu er hress þessa dagana. Er farin að vera aftur ánægð á leikskólanum enda hefur hún Sigga litla með sér! Hann skilur íslensku og því góður félagi og fer aldrei langt frá henni. Hún talar ennþá bara íslensku á leikskólanum og fer svo að hlæja þegar fóstrunar skilja hana ekki! En þetta er allt að koma hjá henni, alltaf ný og ný sænsk orð að bætast við orðaforðann. Við vorum að segja henni frá jólasveinunum um daginn og að hún fengi pakka í skóinn ef hún væri stillt og góð. Þá sagði hún bara að Katrín ætti jólasveininn! og þá á hann líklegast bara að gera það sem hún segir og hananú! Hún hefur sko heraga á sínum dúkkum, setti Hjöddu dúkku í rúmið um daginn og sagði henni að liggja kjurr annars fengi hún ekkert að sofa hér! Svo kemur vertu stillt! og neineineinei, það mætti stundum halda að maður væri alltaf eitthvað að skammast í henni.
Jæja kæru vinir læt þetta duga í bili, heyrumst síðar!