Jólamyndirnar komnar

Þá er loksins búið að setja inn jólamyndirnar á barnaland.  Amman tók sig til og skellti þeim inn….greinilega allir bissí á þessu heimili!

Frekar kuldalegt hér í Uppsala núna.  Held að það hafi farið alveg niður í -20° frost um daginn!!!  brrrrr…….  Húsmóðirin er því farin að klæðast ullarnærfötum og dúnúlpu en er samt kalt!

Katrín fór á þotu um helgina, fannst voðalega gaman að láta draga sig en leist ekkert á að fara að renna niður brekku!!  Skiljanlega….stórhættulegt :-) .  En það tókst nú samt að telja henni trú um að það væri svakalega gaman og hún fór nokkrar ferðir.  Sagi alltaf Katrín grallari!!  Frekar fyndið.

Fórum svo í afmælisveislu til Guðfinnu í dag sem varð 5 ára!!!  Það var mikið stuð á skvísunum þangað til að blaðra sprakk í fanginu á Katrínu.  Jösses hvað hún varð skelkuð yfir því.

Annars gengur lífið bara sinn vanagang!  Er í fríi á morgun og við mæðgur ætlum að “sofa út”, vona að skvísan sofi til amk níu.  Eru það kannski bara draumórar???

Published in: on January 30, 2007 at 10:02 pm Comments (5)

Ekki lengur húsmóðir!

Jæja, lifði af fyrstu vikuna í vinnunni, úff!  Þetta gekk nú bara alveg ágætlega held ég.  Smá brestir í sænskunni minni en ekkert hættulegt.  Líst bara vel á þetta, verður ábyggilega mjög gaman þegar ég er komin inn í jobbið og get talað sænsku án þess að hugsa um hvert orð fyrirfram…

Katrín stóð sig eins og hetja á leikskólanum.  Svo dugleg!  Var reyndar frekar þreytt þegar ég sótti hana á fimmtudaginn.  Helgin hefur því farið í afslöppun og smá tiltekt!  Mjög notalegt og gott.

Hér hefur kyngt niður snjó síðan á laugardag.  Eiginlega fyrsti alvöru snjórinn í vetur.  Amk þurfti Ásgeir að moka í dag!  Ætum ekki að vera einu íbúarnir í götunni sem moka ekki eins og í Västerås :-)

Framundan er kvöldvakt og tvær morgunvaktir og svo er ég að vinna næstu helgi!

Kveðja, Uppsalagengið

Published in: on January 21, 2007 at 8:52 pm Comments (2)

Þrettándinn!

Jólin barasta búin!  Mikið er nú gott að þau eru bara einu sinni á ári, eins og einhver sagði! :-)

Jólaskrautið var plokkað niður í gær (smá svindl í gangi), jólatréð fór líka til heimkynna sinna fyrr í vikunni eftir að húsmóðirin var orðin þreytt á barrinu í stofunni!  og lífið komið í sínar föstu skorður…eða svona hér um bil!

Katrín er búin að vera hinn mesti unglingur um jólin, farið seint í háttin og sofið út!  Núna tekur við baráttan við að snúa þessu við.  Hún fékk einmitt ekkert að leggja sig í dag og litla músin var svoooo þreytt!  Náði að stela smá lúr í sófanum yfir Latabæ en var vakin fljótt aftur!  En núna er hún sofnuð, kl. 8.  Þannig að framundan er kósíkvöld hjá skötuhjúunum, rauðvín og Da Vinci code.  Hef reyndar aldrei verið hrifin af Tom Hanks, en við sjáum til….

Ásgeir byrjar svo að vinna aftur á morgun.  Spennó!

That´s all folks!

Published in: on January 7, 2007 at 7:18 pm Comments (1)

1. janúar 2007!!!

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla!!!

Við höfum haft það rosalega gott yfir jólin. Famílían nældi sér reyndar í smá pest rétt fyrir jól en við létum það ekki á okkur fá! Allir hressir þegar hangikjötið var borið fram á aðfangadagskvöld :-) Katrín var alveg í essinu sínu, hangikjötið vakti að vísu ekki mikla hrifningu en möndulugrauturinn þótti góður svo ég tali nú ekki um heimagerði ísinn! Eftir matinn var snúið sér að pökkunum. Katrín vissi nú ekki alveg hvað hún átti að gera við þetta pakkaflóð og fannst þetta mjög merkilegt! Þegar hver pakki var opnaður þurfti að skoða innihaldið nákvæmlega, setja saman dótið eða máta fötin og síðan var hægt að snúa sér að þeim næsta :-) Alveg frábært að fylgjast með henni! Og takk kærlega fyrir okkur!!! :-)

Á jóladag borðuðum við svo kalkún að hætti ömmu og andabringur á annan í jólum. Síðan héldu veisluhöld í mat og drykk áfram þangað til mamma, pabbi og Siggi fóru þann 30.!! Alveg frábært að hafa þau hér yfir jólin :-) Katrín var mikil ömmustelpa og fyrstu dagana kom ekki annað til greina en að amma skipti á hverri einustu bleyju og færi með hana í háttinn. Sem sagt lúxus fyrir foreldrana :-) Því miður var hún reyndar líka svo góð við ömmu og afa að hún tók það ekki í mál að vekja þau á morgnana, nei! mamma og pabbi áttu að fara fram úr og amma og afi að sofa lengur…

Í gær fórum við svo í áramótaveislu til Guðrúnar og Eíríks sem búa líka hér við Kiselvägen! Alveg frábært kvöld og ekki spilltu kræsingarnar fyrir :-) . Katrín reyndist þó vera með lítið hjarta þegar kom að flugeldunum. Þó Svíarnir megi nú teljast fram úr hófi hógværir með sprengingar leist henni ekkert á þessi læti! Kúrði sig bara í mömmu og vildi varla kíkja út um gluggann! En hér var annars allt orðið kyrrt um hálf eitt og fólk farið að sofa….nema dóttir mín, hún var í stuði til tvö um nóttina! Held bara að hún hafi aldri vakað svona lengi! Mín hefur líka verið frekar framlág í dag og það reyndist þrautinni þyngri að vekja hana eftir lúrinn sinn.

Annars mætti nú segja að árið 2006 hafi verið frekar viðburðarríkt hjá okkur! Látum okkur sjá….

  • Í janúar hélt Ásgeir á vit ævintýranna og byrjaði að vinna í Västerås. Í heilan mánuð svaf hann á þunnri dýnu úr IKEA meðan búslóðinni var pakkað í gám heima á Fróni! Held að þetta sé mánuður sem hann mun seint gleyma.
  • Í febrúar mættu mæðgurnar á svæðið ásamt fríðu föruneyti og að ógleymdri búslóðinni! Hafist var handa við að koma sér fyrir og þá var maður orðin húsmóðir í Svíþjóð eða hemmafru!
  • Í mars var ennþá kalt og mikill snjór, brrrr…. Mæðgurnar fóru að mæta á opinn leikskóla og húsmóðirin reyndi að lära sig svenska! Ásgeir fékk þá líka stöðu í Uppsala frá og með janúar 2007!
  • Í apríl tók að vora í Svíþjóð og famílían fór að huga að flutningum á nýjan leik. Húsnæðisleit í Uppsala byrjaði.
  • Í maí festum við kaup á slottinu! eftir að hafa skoðað áður nokkra “kofa” við mismikla hrifningu dugði ekkert annað en glænýtt úr kassanum :-) Katrín fékk leikskólapláss í Uppsala frá og með haustinu.
  • Í júní fór húsbóndinn í sumarfrí og eftir að hafa sleikt sólina í Sverige var haldið heim á Frónið í rigninguna, sem er náttúrulega toppurinn á tilverunni. Þennan mánuð ákváðu hjónaleysin líka að fyrir næsta sumar yrðu fest kaup á bíl með loftkælingu, annað er ekki sniðugt!
  • Í júlí og ágúst voru mæðgurnar heima á Íslandi en Ásgeir hélt aftur til Svíþjóðar. Húsmóðirin fór að vinna á Hrafnistu og naut lífsins á hótel mömmu!
  • Í september fóru mæðgurnar aftur til Svíþjóðar. Fljótlega eftir komu okkar til Svíaríki var hafist handa við að pakka á nýjan leik. Um miðjan mánuðinn fengum við svo húsið afhent og fluttum inn! Svo einfalt var það, hmmm…. Katrín byrjaði líka á leikskólanum í lok mánaðarins.
  • Í október og nóvember vorum við að stússast í nýja húsinu, farið var í þó nokkrar IKEA og Bauhaus ferðið, húsbóndanum til ómældrar ánægju! Húsmóðirin fékk líka vinnu frá og með janúar 2007!
  • Í desember komu svo jólin með tilheyrandi! Ásgeir hætti svo að vinna í Västerås 22. des og nú erum við að njóta þess að eiga smá frí áður en við byrjum bæði að vinna.
  • Á árinu fengum við líka margar frábærar heimsóknir! Þið sem hafið ekki komið eruð að sjálfsögðu velkomin á nýju ári og þið hin aftur :-) Verð á gistingu er ekki hátt, kannski bara 1 stk lambalæri og cherios handa heimasætunni!

Jæja, þar hafið þið það! Spurning hvort næsta ár verði jafn viðburðarríkt??? Amk eru spennandi tímar fram undan. Húsmóðirin mun hætta að vera húsmóðir, eða svona næstum því, og byrja að vinna. Ásgeir byrjar á nýjum vinnustað og Katrín á nýjum leikskóla. Annað verðr svo bara að koma í ljós :-)

Held að þetta sé orðið lengsta blogg sem ég hef á ævinni skrifað og læt þetta því gott heita í bili!

Bestu kveðjur frá familíunni í Uppsala!

Published in: on January 1, 2007 at 9:01 pm Comments (1)