Jæja, lifði af fyrstu vikuna í vinnunni, úff! Þetta gekk nú bara alveg ágætlega held ég. Smá brestir í sænskunni minni en ekkert hættulegt. Líst bara vel á þetta, verður ábyggilega mjög gaman þegar ég er komin inn í jobbið og get talað sænsku án þess að hugsa um hvert orð fyrirfram…
Katrín stóð sig eins og hetja á leikskólanum. Svo dugleg! Var reyndar frekar þreytt þegar ég sótti hana á fimmtudaginn. Helgin hefur því farið í afslöppun og smá tiltekt! Mjög notalegt og gott.
Hér hefur kyngt niður snjó síðan á laugardag. Eiginlega fyrsti alvöru snjórinn í vetur. Amk þurfti Ásgeir að moka í dag! Ætum ekki að vera einu íbúarnir í götunni sem moka ekki eins og í Västerås
Framundan er kvöldvakt og tvær morgunvaktir og svo er ég að vinna næstu helgi!
Kveðja, Uppsalagengið
Gaman að fá fréttir af ykkur:-) Gott að heyra að allt gengur vel. Heyrumst fljótlega.
Heyrðu ég vissi ekki að þú værir með bloggsíðu..
hún er frænka mín
Gott að gengur vel og ég er farin að sakna litlu frænku minnar!! Ég vissi alltaf að hún myndi standa sig eins og hetja á leikskólanum