Jólamyndirnar komnar

Þá er loksins búið að setja inn jólamyndirnar á barnaland.  Amman tók sig til og skellti þeim inn….greinilega allir bissí á þessu heimili!

Frekar kuldalegt hér í Uppsala núna.  Held að það hafi farið alveg niður í -20° frost um daginn!!!  brrrrr…….  Húsmóðirin er því farin að klæðast ullarnærfötum og dúnúlpu en er samt kalt!

Katrín fór á þotu um helgina, fannst voðalega gaman að láta draga sig en leist ekkert á að fara að renna niður brekku!!  Skiljanlega….stórhættulegt :-) .  En það tókst nú samt að telja henni trú um að það væri svakalega gaman og hún fór nokkrar ferðir.  Sagi alltaf Katrín grallari!!  Frekar fyndið.

Fórum svo í afmælisveislu til Guðfinnu í dag sem varð 5 ára!!!  Það var mikið stuð á skvísunum þangað til að blaðra sprakk í fanginu á Katrínu.  Jösses hvað hún varð skelkuð yfir því.

Annars gengur lífið bara sinn vanagang!  Er í fríi á morgun og við mæðgur ætlum að “sofa út”, vona að skvísan sofi til amk níu.  Eru það kannski bara draumórar???

Published in: on January 30, 2007 at 10:02 pm Comments (5)

The URI to TrackBack this entry is: http://eggid.wordpress.com/2007/01/30/jolamyndirnar-komnar/trackback/

RSS feed for comments on this post.

5 Comments Leave a comment.

  1. Það er nú alveg spurning hvort maður hættir sér til Uppsala þegar það lítur út fyrir að vera eitthvað eskimóaland!!!

  2. Hehehe…bara að taka með sér hlý og góð föt! og fá sér heitt kakó eða kaffi :-)

  3. Ég segi nú bara takk Herborg fyrir myndirnar!!! Bið að heilsa ykkur.

  4. Rákumst á síðuna ykkar fyrir algjöra tilviljun en okkur til mikilla ánægju. Gaman að heyra að allt gengur vel í Uppsala en kuldinn maður minn… hér í Halmstad (eða réttara sagt Oskarström) er vorlykt í lofti, þó að enn sjáist pínu snjór á jörð. Það væri nú gaman að sjá ykkur einhverntíma það er ekki svo langt á milli okkar. Endilega kíkið á okkar síðu sem er á barnalandi merkt Hrafni Sölva og Bryndísi Örnu.
    Kærar kveðjur Hafdís og Siggi Torfi

  5. Hej það er greinilega orðið meira að gera hjá frúnni:)
    Ekkert blogg lengi

    kv.
    Hemmafru Kiselv. semeraðvinnaíþvíaðráðabarnapíu:)


Leave a Comment