Sumar, sól og ís!

Úje!  Það er komið sumar hér í Uppsala!

Fórum og heimsóttum Sunnerstabændurna í gær og fengum okkur ís á veröndinni.  Katrín braut að vísu upp það partý að lokum og sagði Katrín ætlar inn, mér er kalt….  Urðu víkingarnir að vera sammála barninu og flýttu sér inn.

Í dag var hins vegar yfir 20 stiga hiti í sólinni þannig að þetta er allt að koma.  Stuttermabolaveður!

Annars lærði Katrín ósið af sænska ríkissjónvarpinu á föstudagskvöldið!  Við vorum að horfa á Så ska det låta sem er sambærilegur þáttur við Hemma Gunn þáttinn heima.  Nú þarna tekur einn gestanna upp á því að “tala með rassinum”, beygði sig fram og hreyfði kinnarnar.  Voða fyndið.  En eftir þáttinn sjáum við Katrínu beygja sig fram og gera nákvæmlega það sama og sagði Katrín gera eins og kallinn.  Við náttúrulega sprungum úr hlátri sem gerði þetta ennþá fyndnara í hennar augum!  Nú er hún búin að gera þetta nokkrum sinnum.  Hver sagði að það væri slæmt fyrir börn að horfa á sjónvarp!  Ég sem hélt að sænska ettan væri nú nokkuð skothelt!

Bíllinn í viðgerð á morgun og við Ásgeir í fríi!  Hver veit nema að við getum farið í sólbað :-)

Published in: on March 26, 2007 at 8:42 pm Comments (1)

….

Jæja ætli það sé ekki kominn tími á smá fréttaskot!

Bíllinn er kominn úr viðgerð.  Sluppum nokkuð vel og ég var bara nokkuð sátt við reikninginn.  Reyndar tilkynntu þeir okkur að drif…eitthvað væri trasigt og að við þyrftum að skipta um það bráðlega.  Nú já!  og það kostar 11 tusend spänn!  Ómæ!  Þannig að nú verður farið í það að leita að nýjum bíl og vonandi náum við að skipta áður en drifdótið gefur upp öndina….

Reyndar fagnaði húsmóðirin lágum viðgerðarreikningi með því að keyra utan í staur!  Fór hliðarspegillinn heldur illa úr þeirri meðferð og er nú í molum.  Ég kenni að sjálfsögðu fáránlega litlum stæðum og asnalega staðsettum staurum í bílastæðahúsi Akademiska um!!  og hananú….  Þannig að nú á fókusinn okkar tíma á verkstæði á þriðjudaginn.  Er farin að hallast að því að hann fari bara á haugana í vor!

Fengum svo góða heimsókn um daginn.  Anna og Hörðu komu til okkar og mikið var nú gott að fá þau í heimskókn.  Hörður sló í gegn hjá Katrínu enda kom hann með cherios, páskaegg og latabæjarsegla á ísskápinn.  Það þarf væntanlega ekki að taka það fram að daman krafðist þess að borða páskaeggið NÚNA!  og það þýddi ekkert að reyna að fela það fram að páskum, hún mundi sko alveg eftir því!  Anna var ekki síður vinsæl og fengum við foreldrarnir lítið að koma nálægt barninu þessa helgi, bara Anna frænka!  Soldið notalegt verð ég að segja.

Nú bíðum við spennt eftir næstu heimsókn um páskana þegar Katrín fær ömmu og afa í heimskókn.  Eiríkur granni spurði hana einmitt um daginn hvað maður fengi á páskunum og þá sagði mín AFA!!!  Vissulega var verið að fiska eftir páskaeggjum og vonumst við nú eftir slíku góðgæti.

Annars finnst okkur Katrín verða sænskari með hverjum deginum.  Hún er farin að segja heilar setningar á sænsku og er farin að tala miklu meira á leikskólanum.  Reyndar er hún líka farin að blanda svolítið saman.  Er t.d. nánast hætt að segja ekki, segir bara inte og mjölk en ekki mjólk.  Fósturnar segja samt að þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af og að þetta gangi yfir þegar hún verður komin betur inn í sænskuna.

Jæja ætli það sé ekki komið nóg af bulli í bili og svo er líka Lost að byrja.

Koss og knús kæru vinir!

Elín

Published in: on March 21, 2007 at 7:50 pm Comments (2)

Bíllinn…

…er bilaður!  Fór að hósta og hiksta í gær og er núna á verkstæði :( .  Við sem vorum að vonast til að hann myndi endast fram á vor þegar við gætum selt hann.  Þurfum nefnilega að eiga bílinn í 1 ár vegna þess að við fluttum hann frá Íslandi, megum hvorki selja hann né henda honum!  Það góða er að við fengum tíma á verkstæði samdægurs og það telst lúxus hér í Svíþjóðinni!  Ásgeir náði að keyra bílinn með herkjum til læknis og sótti bílaleigubíl í leiðinni…..  Þoli ekki að standa í svona veseni og vil helst ekki hugsa til þess hvað þetta kemur til með að kosta!

 Núna lætur húsmóðirin sig dreyma um nýjan bíl!  Með loftkælingu að sjálfsögðu!  Hver veit nema að við verðum eins og aðrir Svenssonar í vor og komin á Volvo V70????

Rigning í dag.  Er nú yfirleitt ekki hrifin af því en það þýðir að snjórinn er að fara og veðrið að skána :-)   Í tilefni af því var keypt bikiní á prinsessuna og hún vildi að sjálfsögðu æfa sig hér heima í kvöld.  Fór á ströndina, eins og Guðfinna gerir!  En þær stöllur fara oft saman á ströndina….inni í stofu :-)

Er í fríi á morgun þannig að við mæðgur ætlum að sofa út….vonandi til 8! 

Published in: on March 7, 2007 at 7:37 pm Comments (3)

Vor???

Jæja!  Ætli það sé ekki kominn tími á smá færslu!  Frekar lítið líf á síðunni að undanförnu.  Hef reyndar verið að spá í hætta að skrifa hérna þar sem ég er frekar löt við það….en við sjáum til!

Janúar og febrúar haf liðið á ógnarhraða enda í nógu að snúast við að pússla saman vinnu, barni og heimili :-)   En þetta hefur allt saman gengið ljómandi vel.  Katrín fór t.d. í pössun í fyrsta skipti um daginn þegar við Ásgeir áttum bæði að vera á vakt.  Við bjuggumst við svaka sprengju hjá dömunni en hún skemmti sér konunglega.  Sýndi sínar bestu hliðar og virtist bara vera nokkuð vel uppalin :-)   Hún fékk að fara til Þurýar og fjölskyldu á laugardagskvöldi, var samt ekki til í að gista og sagðist ætla að fara heim þegar hún væri búin í vinnunni!  Síðan vaknaði hún hjá Guðrúnu á sunnudagsmorgni, sagði bara hissa Guðrún!  og ekkert mál hjá minni dömu.  Katrín er sko frekar mikil mömmustelpa sem skýrir kannski undrun okkar Ásgeir á málinu en hún kemur okkur alltaf jafn mikið á óvart.

Annars er vor í lofti hér í Uppsala.  Það hefur hlýnað mjög mikið síðustu vikuna og snjórinn á undanhaldi.  Opnuðum glugga um helgina og það er ábyggilega í fyrsta skipti síðan í nóvember!  Er frekar fegnin enda engin áhugamaður um snjómokstur og kulda!

Fáum svo heimsókn um helgina.  Anna og Hörður ætla að koma og við hlökkum mikið til að fá þau til okkar.  Munum ábyggilega fá okkur nokkra öl :-)

Jæja kæra fólk, fleira er ekki í fréttum í bili!

Published in: on March 5, 2007 at 8:22 pm Comments (4)