Jæja! Ætli það sé ekki kominn tími á smá færslu! Frekar lítið líf á síðunni að undanförnu. Hef reyndar verið að spá í hætta að skrifa hérna þar sem ég er frekar löt við það….en við sjáum til!
Janúar og febrúar haf liðið á ógnarhraða enda í nógu að snúast við að pússla saman vinnu, barni og heimili
En þetta hefur allt saman gengið ljómandi vel. Katrín fór t.d. í pössun í fyrsta skipti um daginn þegar við Ásgeir áttum bæði að vera á vakt. Við bjuggumst við svaka sprengju hjá dömunni en hún skemmti sér konunglega. Sýndi sínar bestu hliðar og virtist bara vera nokkuð vel uppalin
Hún fékk að fara til Þurýar og fjölskyldu á laugardagskvöldi, var samt ekki til í að gista og sagðist ætla að fara heim þegar hún væri búin í vinnunni! Síðan vaknaði hún hjá Guðrúnu á sunnudagsmorgni, sagði bara hissa Guðrún! og ekkert mál hjá minni dömu. Katrín er sko frekar mikil mömmustelpa sem skýrir kannski undrun okkar Ásgeir á málinu en hún kemur okkur alltaf jafn mikið á óvart.
Annars er vor í lofti hér í Uppsala. Það hefur hlýnað mjög mikið síðustu vikuna og snjórinn á undanhaldi. Opnuðum glugga um helgina og það er ábyggilega í fyrsta skipti síðan í nóvember! Er frekar fegnin enda engin áhugamaður um snjómokstur og kulda!
Fáum svo heimsókn um helgina. Anna og Hörður ætla að koma og við hlökkum mikið til að fá þau til okkar. Munum ábyggilega fá okkur nokkra öl
Jæja kæra fólk, fleira er ekki í fréttum í bili!
Oooohh … ertu að segja mér að ég neyðist að fá mér öl?
En leiðinlegt.
Gaman að fá smá fréttaskot:-)
Mjög gaman að fá smá fréttaskot! Ekki hætta að blogga, það kemur ekki til greina,ok?Vona að allt gangi vel.
Já Hörður hér er möst að fá sér einn öl och sen en till!