….

Jæja ætli það sé ekki kominn tími á smá fréttaskot!

Bíllinn er kominn úr viðgerð.  Sluppum nokkuð vel og ég var bara nokkuð sátt við reikninginn.  Reyndar tilkynntu þeir okkur að drif…eitthvað væri trasigt og að við þyrftum að skipta um það bráðlega.  Nú já!  og það kostar 11 tusend spänn!  Ómæ!  Þannig að nú verður farið í það að leita að nýjum bíl og vonandi náum við að skipta áður en drifdótið gefur upp öndina….

Reyndar fagnaði húsmóðirin lágum viðgerðarreikningi með því að keyra utan í staur!  Fór hliðarspegillinn heldur illa úr þeirri meðferð og er nú í molum.  Ég kenni að sjálfsögðu fáránlega litlum stæðum og asnalega staðsettum staurum í bílastæðahúsi Akademiska um!!  og hananú….  Þannig að nú á fókusinn okkar tíma á verkstæði á þriðjudaginn.  Er farin að hallast að því að hann fari bara á haugana í vor!

Fengum svo góða heimsókn um daginn.  Anna og Hörðu komu til okkar og mikið var nú gott að fá þau í heimskókn.  Hörður sló í gegn hjá Katrínu enda kom hann með cherios, páskaegg og latabæjarsegla á ísskápinn.  Það þarf væntanlega ekki að taka það fram að daman krafðist þess að borða páskaeggið NÚNA!  og það þýddi ekkert að reyna að fela það fram að páskum, hún mundi sko alveg eftir því!  Anna var ekki síður vinsæl og fengum við foreldrarnir lítið að koma nálægt barninu þessa helgi, bara Anna frænka!  Soldið notalegt verð ég að segja.

Nú bíðum við spennt eftir næstu heimsókn um páskana þegar Katrín fær ömmu og afa í heimskókn.  Eiríkur granni spurði hana einmitt um daginn hvað maður fengi á páskunum og þá sagði mín AFA!!!  Vissulega var verið að fiska eftir páskaeggjum og vonumst við nú eftir slíku góðgæti.

Annars finnst okkur Katrín verða sænskari með hverjum deginum.  Hún er farin að segja heilar setningar á sænsku og er farin að tala miklu meira á leikskólanum.  Reyndar er hún líka farin að blanda svolítið saman.  Er t.d. nánast hætt að segja ekki, segir bara inte og mjölk en ekki mjólk.  Fósturnar segja samt að þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af og að þetta gangi yfir þegar hún verður komin betur inn í sænskuna.

Jæja ætli það sé ekki komið nóg af bulli í bili og svo er líka Lost að byrja.

Koss og knús kæru vinir!

Elín

Published in:  on March 21, 2007 at 7:50 pm Comments (2)