Sumar, sól og ís!

Úje!  Það er komið sumar hér í Uppsala!

Fórum og heimsóttum Sunnerstabændurna í gær og fengum okkur ís á veröndinni.  Katrín braut að vísu upp það partý að lokum og sagði Katrín ætlar inn, mér er kalt….  Urðu víkingarnir að vera sammála barninu og flýttu sér inn.

Í dag var hins vegar yfir 20 stiga hiti í sólinni þannig að þetta er allt að koma.  Stuttermabolaveður!

Annars lærði Katrín ósið af sænska ríkissjónvarpinu á föstudagskvöldið!  Við vorum að horfa á Så ska det låta sem er sambærilegur þáttur við Hemma Gunn þáttinn heima.  Nú þarna tekur einn gestanna upp á því að “tala með rassinum”, beygði sig fram og hreyfði kinnarnar.  Voða fyndið.  En eftir þáttinn sjáum við Katrínu beygja sig fram og gera nákvæmlega það sama og sagði Katrín gera eins og kallinn.  Við náttúrulega sprungum úr hlátri sem gerði þetta ennþá fyndnara í hennar augum!  Nú er hún búin að gera þetta nokkrum sinnum.  Hver sagði að það væri slæmt fyrir börn að horfa á sjónvarp!  Ég sem hélt að sænska ettan væri nú nokkuð skothelt!

Bíllinn í viðgerð á morgun og við Ásgeir í fríi!  Hver veit nema að við getum farið í sólbað :-)

Published in: on March 26, 2007 at 8:42 pm Comments (1)

The URI to TrackBack this entry is: http://eggid.wordpress.com/2007/03/26/sumar-sol-og-is/trackback/

RSS feed for comments on this post.

One Comment Leave a comment.

  1. hæ, hæ
    Takk fyrir samveruna um páskana. Er farin að lengja eftir nýjum fréttum af fjölskyldunni.


Leave a Comment