Halló allir!

Jæja við fórum í dag og pöntuðum nýjan bíl.  Það var sko ekki leiðinlegt!  Vildi helst skilja gamla skrjóðinn eftir og fá nýja bílinn STRAX!  En við þurfum að bíða fram á föstudag…haldið þið að fókusinn haldi það út???  Þannig að það verður rúntað um helgina með RIX fm í botni og höndina út um gluggann.

Fengum annars frábærar fréttir í dag.  Ásgeir er búinn að fá samninginn sinn framlengdan og fær að vera hér amk þangað til hann er orðinn sérfræðingur!  Þar af leiðandi er ljóst að við munum vera í Uppsala næstu árin.

Komst annars að því um helgina að við búum í “hættulegu” hverfi.  Það er búið að setja neonbleik skilti út um allt þar sem stendur…I det här området säljs alkohol dygnet rundt, blandt annat till 13 åringar!!  Ekki það að við höfum orðið vör við þessa sölu.  Erum þó farin að líta grunsamlega á pabba sem eru úti á göngu með barnavagna, kalla sem eru alltaf að þvo bílana sína og konur sem eru endalaust í garðinum sínum.  Þetta er náttúrulega mjög grunsamlegt athæfi.

Húsmóðirnin er svo aftur orðin nútímakona.  Fékk nýjan gsm síma í dag eftir að hafa verið símalaus í næstum eitt og hálft ár.  Frekar frumstætt…  Flottur sími og það besta við hann er að hann er með útvarpi!  Vissi nú ekki einu sinni að það væri til.  Held eiginlega að ég eigi eftir að nota útvarpið meira en símann.

Sem sagt bara nokkuð góður mánudagur!

koss og knús til ykkar allra!

Published in: on April 23, 2007 at 8:04 pm Comments (3)

Sumardagurinn fyrsti

Bloggletin virðist hafa náð tökum á mér á ný!  Ætli það lesi einhver þessa síðu ennþá???

Jæja, sumardagurinn fyrsti var í dag!  Hér í Uppsala var ekta sumardags fyrsta veður, rigning, rok og kalt :-)   Fannst ég vera komin heim, så skönt!

Annars er allt gott að frétta héðan.  Katrínu flýgur áfram í sænskunni, hún er farin að tala nánast eingöngu sænsku á leikskólanum þó einstök íslensk orð læðist inn á milli.  Okkur finnst hún hins vegar farin að blanda mjög mikið saman hérna heima.  Mamma! ég vil fá den!  og ég vil sitta här!  Þetta er hálf fyndið.  Samt vill maður nú ekki að barnið sitt fari að “syngja” íslenskuna.  Fóstrunarar á leikskólanum er að athuga með íslenskukennara fyrir hana.  Það er víst eitthvað sem börn eiga rétt á hér, svo sósíalt!

Sænska skattaskýrslan er komin!  Við Ásgeir höfum gefist upp og ákveðið að kalla á hjálp!  Kann einhver á sænska skattinn???

Svo erum við búin að ákveða að kaupa nýjan bíl, jibbíííí!  Orðin frekar þreytt á gamla bílnum og hitinn um síðustu helgi var óþægileg áminning á mikilvægi loftkælingar í Svíaríki.  Fyrir valinu varð Ford Mondeo, sannkölluð glæsikerrra!  Förum á mánudaginn og göngum frá kaupunum :-)   Þeir vildu hins vega ekki gefa okkur mikið fyrir gamla Fókusinn okkar en jæja…

Erum svo að skipuleggja sumarfríið okkar.  Hver veit nema að við komum heim!!!

Jæja ætla að fara að horfa á djävulen bär prada eða the devil wears prada sem við fengum á póstvídeóleiginni í dag.  Ójá, hér kemur ALLT með póstinum.

Published in: on April 19, 2007 at 8:19 pm Comments (5)