Bloggletin virðist hafa náð tökum á mér á ný! Ætli það lesi einhver þessa síðu ennþá???
Jæja, sumardagurinn fyrsti var í dag! Hér í Uppsala var ekta sumardags fyrsta veður, rigning, rok og kalt
Fannst ég vera komin heim, så skönt!
Annars er allt gott að frétta héðan. Katrínu flýgur áfram í sænskunni, hún er farin að tala nánast eingöngu sænsku á leikskólanum þó einstök íslensk orð læðist inn á milli. Okkur finnst hún hins vegar farin að blanda mjög mikið saman hérna heima. Mamma! ég vil fá den! og ég vil sitta här! Þetta er hálf fyndið. Samt vill maður nú ekki að barnið sitt fari að “syngja” íslenskuna. Fóstrunarar á leikskólanum er að athuga með íslenskukennara fyrir hana. Það er víst eitthvað sem börn eiga rétt á hér, svo sósíalt!
Sænska skattaskýrslan er komin! Við Ásgeir höfum gefist upp og ákveðið að kalla á hjálp! Kann einhver á sænska skattinn???
Svo erum við búin að ákveða að kaupa nýjan bíl, jibbíííí! Orðin frekar þreytt á gamla bílnum og hitinn um síðustu helgi var óþægileg áminning á mikilvægi loftkælingar í Svíaríki. Fyrir valinu varð Ford Mondeo, sannkölluð glæsikerrra! Förum á mánudaginn og göngum frá kaupunum
Þeir vildu hins vega ekki gefa okkur mikið fyrir gamla Fókusinn okkar en jæja…
Erum svo að skipuleggja sumarfríið okkar. Hver veit nema að við komum heim!!!
Jæja ætla að fara að horfa á djävulen bär prada eða the devil wears prada sem við fengum á póstvídeóleiginni í dag. Ójá, hér kemur ALLT með póstinum.
Hæ hæ kæra fjölskylda og gleðilegt sumar
Alltaf gaman að fá fréttir af ykkur, svo hefur það svolítið fræðslulegt gildi fyrir okkur:) Ýmislegt sem maður hefur lært af því fyrir komandi frámtíð…hvernig þetta blessaða sænska kerfi virka!!!
Vonandi sjáumst við í sumar.
Koss og knús
Guðbjörg og family
Já ég gæti kannski haft námskeið, sænska kerfið 103???
Gleðilegt sumar!!
Ég les alltaf bloggið þitt þannig að endilega ekki hætta að blogga. Það er svo gaman að fá fréttir af ykkur.
Kveðja
Mamma
Ætli okkur veiti nokkuð að byrja í sænska kerfið 101:)
Gaman að fá fréttir af ykkur:-) Ég kíki á síðuna á hverjum degi þannig að þú mátt alls ekki hætta að blogga!! Bara þeim mun skemmtilegra þegar það kemur loks færsla…:-)
Knús knús, Þorbjörg