Halló allir!

Jæja við fórum í dag og pöntuðum nýjan bíl.  Það var sko ekki leiðinlegt!  Vildi helst skilja gamla skrjóðinn eftir og fá nýja bílinn STRAX!  En við þurfum að bíða fram á föstudag…haldið þið að fókusinn haldi það út???  Þannig að það verður rúntað um helgina með RIX fm í botni og höndina út um gluggann.

Fengum annars frábærar fréttir í dag.  Ásgeir er búinn að fá samninginn sinn framlengdan og fær að vera hér amk þangað til hann er orðinn sérfræðingur!  Þar af leiðandi er ljóst að við munum vera í Uppsala næstu árin.

Komst annars að því um helgina að við búum í “hættulegu” hverfi.  Það er búið að setja neonbleik skilti út um allt þar sem stendur…I det här området säljs alkohol dygnet rundt, blandt annat till 13 åringar!!  Ekki það að við höfum orðið vör við þessa sölu.  Erum þó farin að líta grunsamlega á pabba sem eru úti á göngu með barnavagna, kalla sem eru alltaf að þvo bílana sína og konur sem eru endalaust í garðinum sínum.  Þetta er náttúrulega mjög grunsamlegt athæfi.

Húsmóðirnin er svo aftur orðin nútímakona.  Fékk nýjan gsm síma í dag eftir að hafa verið símalaus í næstum eitt og hálft ár.  Frekar frumstætt…  Flottur sími og það besta við hann er að hann er með útvarpi!  Vissi nú ekki einu sinni að það væri til.  Held eiginlega að ég eigi eftir að nota útvarpið meira en símann.

Sem sagt bara nokkuð góður mánudagur!

koss og knús til ykkar allra!

Published in: on April 23, 2007 at 8:04 pm Comments (3)

The URI to TrackBack this entry is: http://eggid.wordpress.com/2007/04/23/70/trackback/

RSS feed for comments on this post.

3 Comments Leave a comment.

  1. Það er bara geggjað að eyða peningum á vorin ;) Líst vel á þetta með gsm símann. Mikið hefur sölu – gsm fólkið orðið glatt að þú hættir að hunsa símana ;)

    hlakka til að sjá silfur kerruna á föstud.
    kveðja
    Guðrún

  2. Frábært! Til hamingju með bílakaupin:-) Þetta verður æðislegt fyrir ykkur! Og Ásgeir, innilega til hamingju með þessa staðfestingu á samningnum þínum.
    kveðja, Þorbjörg

  3. Það er bara fulllt af góðum fréttum, til lukku með þetta allt saman. Vona að þið komið eh á klakann í sumar.
    Líst ekkert á það að þú gefist upp á bloggi! Gleðilegt sumar :)


Leave a Comment