Húsmæðraorlof

Þá eru Ásgeir og Katrín komin til Íslands!  Fóru í gær og gekk bara ágætlega að mestu.  Pabbinn var með 3ja klst. skemmtipakka í töskunni fyrir flugið sem hann hefði geta sleppt.  Við flugtak kom nefnilega í ljós að dóttir mín er flughrædd.  Henni leist ekkert á þessi ósköp, kúrði sig bara hjá pabba sínum og sofnaði að lokum.   Vaknaði svo eftir klukkutíma og sat bara stillt og prúð í sætinu sínu og spjallaði!  Vel uppalin finnst ykkur ekki!

Þannig að nú hefst “húsmæðraorlofið” mitt.  Get ræktað letingjann í mér nætu tvær vikurnar á milli vakta.  Já, þið munið finna mig í sófanum.  Er reyndar með stórhreingerningu á listanum mínum….  Ótrúlega hljótt hérna núna, hálf leiðinlegt verð ég að segja.

Kem heim sunnudaginn 1. júlí þegar sumarfríið mitt byrjar!!!  Ég hlakka svo til :-) Ætla að fara í sund og fá mér almennilega pítsu!

Höfum annars haft það með ágætum hér að undanförnu.  Veðrið búið að vera frábært og búið er að fjárfesta í sundlaug fyrir Katrínu.  Hefur notið sín vel í henni í hitanum.

Jæja kæru vinir, sjáumst í júlí!

Published in: Uncategorized on June 19, 2007 at 10:51 pm Comments (6)