Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla!!!
Við höfum haft það rosalega gott yfir jólin. Famílían nældi sér reyndar í smá pest rétt fyrir jól en við létum það ekki á okkur fá! Allir hressir þegar hangikjötið var borið fram á aðfangadagskvöld
Katrín var alveg í essinu sínu, hangikjötið vakti að vísu ekki mikla hrifningu en möndulugrauturinn þótti góður svo ég tali nú ekki um heimagerði ísinn! Eftir matinn var snúið sér að pökkunum. Katrín vissi nú ekki alveg hvað hún átti að gera við þetta pakkaflóð og fannst þetta mjög merkilegt! Þegar hver pakki var opnaður þurfti að skoða innihaldið nákvæmlega, setja saman dótið eða máta fötin og síðan var hægt að snúa sér að þeim næsta
Alveg frábært að fylgjast með henni! Og takk kærlega fyrir okkur!!!
Á jóladag borðuðum við svo kalkún að hætti ömmu og andabringur á annan í jólum. Síðan héldu veisluhöld í mat og drykk áfram þangað til mamma, pabbi og Siggi fóru þann 30.!! Alveg frábært að hafa þau hér yfir jólin
Katrín var mikil ömmustelpa og fyrstu dagana kom ekki annað til greina en að amma skipti á hverri einustu bleyju og færi með hana í háttinn. Sem sagt lúxus fyrir foreldrana
Því miður var hún reyndar líka svo góð við ömmu og afa að hún tók það ekki í mál að vekja þau á morgnana, nei! mamma og pabbi áttu að fara fram úr og amma og afi að sofa lengur…
Í gær fórum við svo í áramótaveislu til Guðrúnar og Eíríks sem búa líka hér við Kiselvägen! Alveg frábært kvöld og ekki spilltu kræsingarnar fyrir
. Katrín reyndist þó vera með lítið hjarta þegar kom að flugeldunum. Þó Svíarnir megi nú teljast fram úr hófi hógværir með sprengingar leist henni ekkert á þessi læti! Kúrði sig bara í mömmu og vildi varla kíkja út um gluggann! En hér var annars allt orðið kyrrt um hálf eitt og fólk farið að sofa….nema dóttir mín, hún var í stuði til tvö um nóttina! Held bara að hún hafi aldri vakað svona lengi! Mín hefur líka verið frekar framlág í dag og það reyndist þrautinni þyngri að vekja hana eftir lúrinn sinn.
Annars mætti nú segja að árið 2006 hafi verið frekar viðburðarríkt hjá okkur! Látum okkur sjá….
- Í janúar hélt Ásgeir á vit ævintýranna og byrjaði að vinna í Västerås. Í heilan mánuð svaf hann á þunnri dýnu úr IKEA meðan búslóðinni var pakkað í gám heima á Fróni! Held að þetta sé mánuður sem hann mun seint gleyma.
- Í febrúar mættu mæðgurnar á svæðið ásamt fríðu föruneyti og að ógleymdri búslóðinni! Hafist var handa við að koma sér fyrir og þá var maður orðin húsmóðir í Svíþjóð eða hemmafru!
- Í mars var ennþá kalt og mikill snjór, brrrr…. Mæðgurnar fóru að mæta á opinn leikskóla og húsmóðirin reyndi að lära sig svenska! Ásgeir fékk þá líka stöðu í Uppsala frá og með janúar 2007!
- Í apríl tók að vora í Svíþjóð og famílían fór að huga að flutningum á nýjan leik. Húsnæðisleit í Uppsala byrjaði.
- Í maí festum við kaup á slottinu! eftir að hafa skoðað áður nokkra “kofa” við mismikla hrifningu dugði ekkert annað en glænýtt úr kassanum
Katrín fékk leikskólapláss í Uppsala frá og með haustinu.
- Í júní fór húsbóndinn í sumarfrí og eftir að hafa sleikt sólina í Sverige var haldið heim á Frónið í rigninguna, sem er náttúrulega toppurinn á tilverunni. Þennan mánuð ákváðu hjónaleysin líka að fyrir næsta sumar yrðu fest kaup á bíl með loftkælingu, annað er ekki sniðugt!
- Í júlí og ágúst voru mæðgurnar heima á Íslandi en Ásgeir hélt aftur til Svíþjóðar. Húsmóðirin fór að vinna á Hrafnistu og naut lífsins á hótel mömmu!
- Í september fóru mæðgurnar aftur til Svíþjóðar. Fljótlega eftir komu okkar til Svíaríki var hafist handa við að pakka á nýjan leik. Um miðjan mánuðinn fengum við svo húsið afhent og fluttum inn! Svo einfalt var það, hmmm…. Katrín byrjaði líka á leikskólanum í lok mánaðarins.
- Í október og nóvember vorum við að stússast í nýja húsinu, farið var í þó nokkrar IKEA og Bauhaus ferðið, húsbóndanum til ómældrar ánægju! Húsmóðirin fékk líka vinnu frá og með janúar 2007!
- Í desember komu svo jólin með tilheyrandi! Ásgeir hætti svo að vinna í Västerås 22. des og nú erum við að njóta þess að eiga smá frí áður en við byrjum bæði að vinna.
- Á árinu fengum við líka margar frábærar heimsóknir! Þið sem hafið ekki komið eruð að sjálfsögðu velkomin á nýju ári og þið hin aftur
Verð á gistingu er ekki hátt, kannski bara 1 stk lambalæri og cherios handa heimasætunni!
Jæja, þar hafið þið það! Spurning hvort næsta ár verði jafn viðburðarríkt??? Amk eru spennandi tímar fram undan. Húsmóðirin mun hætta að vera húsmóðir, eða svona næstum því, og byrja að vinna. Ásgeir byrjar á nýjum vinnustað og Katrín á nýjum leikskóla. Annað verðr svo bara að koma í ljós
Held að þetta sé orðið lengsta blogg sem ég hef á ævinni skrifað og læt þetta því gott heita í bili!
Bestu kveðjur frá familíunni í Uppsala!